Þröngubásar eru hluti af gljúfrum Þjórsár fyrir innan Sultartangalón. Ekki fjölfarin gönguleið nema helst smalar á haustin. Eru þar miklar náttúrsmíðar, katlar og drangar í berginu. Ágætt að gefa sér tíma þar til að njóta. Þetta er 4 -5 tíma ganga allt að 15 km. Ekki er mikil hækkun og gönguland nokkuð þægilegt.

Hittumst við FSU Selfossi sameinumst í bíla og förum kl. 8.00
Góður vegur alla leið.
Ekið er upp Þjórsárdal og hittum göngustjóran við brúna yfir Tungnaá og höldum yfir Búðarháls að upphafs stað göngu.
Gangan hefst um kl. 9.30
Með göngukveðju ferðanefndin